[00:00.000]Í skini morgunsólar[00:02.133][00:03.059]Ég út gekk í skóginn um árdagsstund[00:10.769]Og ungra manna hóp ég sá[00:17.863]Þeir biðu þar andspænis aftökusveit[00:25.887]Sem til axla sínum rifflum brá[00:36.334][00:41.208]Og yfir þeim breiddu sig beykitré[00:46.335]Með blikandi dögg á hverri grein[00:51.066]Og þeir stóðu þar hnarrreistir, maður við mann[00:56.099]Meðan morgunsólin á þá skein[01:01.209][01:03.728]Engin beiðni um miskunn í svip þeirra sást[01:08.622]Þess′ra sona okkar hrjáða lands[01:13.657]Sem höfðu af eldmóði uppreisn gert[01:18.620]Móti ógnarvaldi kúgarans[01:23.708]Og tendra með þjóð sinni trú á sitt líf[01:28.663]Þó þeim tækist ei sigrinum að ná[01:33.672]Því máttu þeir dauðanum mæta nú[01:38.699]Meðan morgunsólin skein á þá[01:44.813][02:28.733]Ó, mín þjóð, ó, mín þjóð, ó, hve þjökuð þú ert[02:33.617]Eftir þjáninganna löngu hríð[02:38.643]Samt þú fagnað getur, því frelsið er nær[02:43.641]Með sín fyrirheit um betri tíð[02:48.677]Og þegar sigrinum senn er náð[02:53.651]Mun þín saga með stolti greina frá[02:58.700]Þeim sem hnigu í skógarins mórauðu mold[03:03.627]Meðan morgunsólin skein á þá[03:09.255]